Steini og Jóhanna... komin heim frá Köben

aftur á Íslandi

18.12.2007 18:07:05 / steini

Ísland, best í heimi...

... ehhh nei... dýrast í heimi!

» 0 hafa sagt sína skoðun

02.12.2007 18:04:51 / steini

Næstum hætt að blogga

Eflaust enginn sem kíkir hingað inn ennþá... smá færsla hér samt sem áður. Erum búin að kaupa íbúð í Hraunbæ 6 og fáum afhent 15. feb. Þangað til erum við í góðu yfirlæti hér hjá mömmu og pabba í Fossvoginum. Hlökkum samt mikið til að komast í okkar eigin íbúð. Sindri er hraustur og kátur, þroskast hratt og er farinn að ýta sér áfram á gólfinu, styttist í að hann fari að skríða :) Litli gaurinn er aðeins farinn að láta hafa meira fyrir sér á næturnar núna. Gæti verið vegna meiri tanntöku, efri gómurinn er vel bólginn en ekkert bólar á fleiri tönnum hins vegar. Einhver þroskakippur gæti líka verið í gangi, á þessum aldri er talað um að börn geti farið að finna fyrir svokölluðum "aðskilnaðarkvíða".

Svona annað slagið finnur maður fyrir "Köben-söknuði", söknum borgarinnar og vina. Ef við byggjum þar enn gæti maður m.a. skellt sér á Parken í byrjun des. og séð FCK spila við Atletico Madrid í UEFA cup, eða farið á tónleika með Korn eða Smashing Pumkins eftir áramót (http://www.billetlugen.dk/)... maður var engan vegin nógu duglegur að fara á tónleika meðan við bjuggum þarna.


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.10.2007 16:37:26 / Johanna

Hætt að blogga

Við erum hætt að blogga í bili :) Verðum samt með síðuna hans Sindra.

kv. Jóa


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.09.2007 22:40:20 / Johanna

Kominn með vinnu :)

Jæja þá getum við farið að safna fyrir íbúð því Steini er kominn með vinnu veiiii.... :) Fer á Hafmynd þar sem að hann vann áður en við fluttum út. Byrjar svo á mánudaginn, það eru enn smá hlutir sem þarf að ganga frá áður t.d. að taka á móti dótinu okkar, finna heimilislækni (sem ætlar að verða vesen) kaupa bíl og fleira.

En við fáum sem sé dótið okkar á morgun og það verður ljúft því þá getum við komið okkur aðeins betur fyrir í herberginu okkar hér hjá tengdó :D Við sofum núna í rúmi sem er 105 cm á breidd og það getur verið ansi þröngt þegar við erum þrjú í því! Hlökkum því til að fá IKEA rúmið okkar sem er 140 á breidd, algjört drasl en er himneskt miðað við þetta ;) Sindri er samt með barnarúm sem að við fengum lánað sem að amma Magga svaf í á sínum tíma.

Svefnvenjur hans Sindra eru að verða ansi góðar og er hann farinn að sofna um kl:20 á kvöldin í sínu rúmi, gefum honum að drekka, leggjum hann svo inn og förum fram og hann sofnar svo sjálfur, mjög ljúft. Sjáum hversu lengi það endist hehe... Það er svo fyndið þegar við erum að gefa honum grautinn sinn því hann er sko alveg farinn að kunna á þetta og galopnar munninn þegar að skeiðin nálgast og maður þarf bókstaflega að moka upp í hann. Svo þegar grauturinn er búinn þá verður hann reiður og vill meira, litla matargatið.

 

 

 

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

14.09.2007 17:37:49 / steini

Ísland

Búinn að verja lokaverkefni, gekk mjög vel og nældi mér í eina tólfu. Daginn eftir komum við svo búslóðinni til Eimskip og í gær var svo flogið heim. Þökkum öllum sem hjálpuðu með flutninginn kærlega fyrir og svo Ástu og Halla fyrir að hýsa okkur eina nótt. Skrítið að vera kominn svo heim til Íslands aftur 8|

Erum búin að virkja gömlu GSM númerin okkar. Meira síðar, erum enn að trappa okkur niður eftir strembna viku.


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.09.2007 21:21:55 / Johanna

4 dagar í heimferð :)

Já nú erum við bara á fullu að pakka og Steini að undirbúa sig fyrir vörnina á þriðjudaginn. Það gengur bara vel að koma öllu þessi dóti okkar í kassa en "allt" gólfplássið sem var inn í eldhúsi/stofu er meira og minna farið! Við munum tæma íbúðina á miðvikudaginn og vonandi kemst dótið í skipið sem fer á föstudaginn, því þá tekur þetta ekki nema viku að berast til Íslands. Við erum þá orðin heimilislaus og munum því gista hjá Halla og Ástu eina nótt :) Takk fyrir það! Getum bara ekki beðið eftir að koma heim.

Sjáumst eftir nokkra daga :haha:

 

 

 

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

03.09.2007 14:23:35 / steini

Pappakassi

Nú flæða pappakassar um öll gólf. Erum byrjuð að pakka og henda fyrir flutninginn í næstu viku. Samhliða er ég að undirbúa vörnina, gengur mjög hægt eins og er en planið að vera búinn fyrir helgi svo við getum klárað að pakka og þrífa þá. Miðað við fyrstu áætlun þá nær búslóðin ekki 5 rúmmetrum, sem er fínt því ég er búinn að leigja 7,5 rúmmetra bíl til að flytja draslið til Eimskip.

Við erum með nokkra hluti sem við ætlum ekki að taka með heim þannig að ef einhvern vantar húsgögn eða þekkir einhvern sem er nýfluttur til Köben þá endilega hafa samband, þetta fæst fyrir slikk. Hlutirnir sem við ætlum að losna við eru:

2 sófaborð

Bókahilla

Skrifborð (fæst gefins)

Sófi

Sindri stækkar og stækkar. Búinn að vera í stuði undanfarið og duglegur að æla allt og alla út, foreldrunum til mikillar skemmtunar! Verður annars rosa gaman að koma heim og sýna gripinn, þetta er bara nokkuð vel heppnað eintak held ég 8)


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.08.2007 17:25:25 / steini

The end is near!

Þá er komin dagsetning á brottför. Ég mun verja lokaverkefnið þann 11. sept, svo munum við koma búslóðinni í skip þann 12. og fljúga heim 13. sept. Tveggja ára dvöl á enda, tíminn hefur liðið ótrúlega hratt en við erum bara spennta að flytja aftur til Íslands. Hef aðeins verið að þreyfa fyrir mér á vinnumarkaðinum heima en mun ekki ganga frá neinu í þeim efnum fyrr en ég er kominn heim.

Höfum bara tekið því nokkuð rólega þessa dagana frá því að ég skilaði verkefninu inn, fyrir utan morgunin sem Jóhanna negldi hnéskelinni úr lið... það var ekki rólegur morgun! Sindri litli hress, var reyndar með pínu hita í gærkvöldi eftir bólusetninguna en er búinn að vera fínn í dag. Býst við að ég byrji eitthvað að undirbúa vörnina mína í næstu viku því dagana á undan henni þá þurfum við líka að pakka og þrífa. Þessa dagana erum við líka að setja myndir í albúm, létum framkalla einhverjar 300 myndir um daginn.

Í næstu viku er svo málið að skella sér á Parken svona í síðasta skipti. FCK spilar við Benfica í undankeppni Meistaradeildarinnar, uppselt núþegar þannig að það á eftir að vera stemmari á leiknum. Og svona að lokum þá vantar okkur sjálfboðaliða til að hjálpa að flytja 12. sept, allir að bjóða sig fram :D

» 7 hafa sagt sína skoðun

20.08.2007 16:22:17 / Johanna

Bólusetning

Þá er guttinn orðinn þriggja mánaða. Við fórum í morgun til læknisins í bólusetningu. Sindri var steinsofandi þegar hún stakk nálinni í og greyið litli vaknaði um leið hágrátandi, hefur vonandi haldið að þetta væri vondur draumur. En hann hætti að gráta þegar pabbi hans tók hann upp og faðmaði hann.

Við vorum í gær hjá Brittu og Morten, þau buðu okkur í hádegismat. Það er alltaf svo gaman að hitta þau, svo yndisleg bæði tvö. Þau eru búin að ákveða að koma að heimsækja okkur til Íslands :D Gaman að hafa kynnst allavegana einu dönsku pari svona vel, við viljum endilega halda sambandi við þau.
 
Vorum að framkalla ca. 300 myndir bæði frá dvölinni í Danmörku og svo af honum Sindra sæta. Ætlum að búa til sér albúm með bara myndum frá Dk og svo fær Sindri sér albúm ;)
 
Það er komin dagsetning fyrir vörnina hjá Steina og er það 11. sept. Nú er það bara að kanna gámamálin og panta miða heim veiii... En það ætti því að vera frá 11.-14. sept. :)

» 1 hafa sagt sína skoðun

17.08.2007 09:59:48 / Johanna

Óhapp kl: 6 um morguninn

Ég var að skipta á Sindra eldsnemma í morgun (í rúminu) og þegar ég ætlaði að fara með bleyjuna í ruslið þá náði ég að reka hnéð á mér í rúmið hans og viti menn helv.. hnéskelin færðist til 8| Þar sem að hún vildi ekki poppa í liðinn aftur þá varð Steini að hringja á sjúkrabíl. Ég var sem sé í rúminu á nærfötunum og Sindri í þvílíku stuði, bara brosandi og hjalandi á meðan mamman var stynjandi af sársauka og ekki góðar stunur ;) Sjúkraliðarnir komu og það fyrsta sem þeir segja er að þeir hafi enga reynslu í svona löguðu og var það nú ekki traustvekjandi fyrir mig. En ég sagði þeim bara að fixa þetta því ég væri að deyja úr sársauka. Annar þeirra byrjaði að færa hnéð til og á meðan ríghélt ég mér í hinn, þar sem að Steini hélt á litla glaða Sindra sem að saug á sér hendina í öllum þessum látum. En sem betur fer hafðist þetta og ég þurfti ekki að fara upp á spítala. Við litla fjölskyldan lögðum okkur bara aftur nema ég var með ís vafðan um hnéð. Djöf.. óheppni svona snemma morguns :!: 

» 8 hafa sagt sína skoðun

13.08.2007 17:22:15 / steini

Búinn að skila veiiii

Þá er maður búinn að skila lokaverkefninu... gekk 5 daga yfir settan dag. Fæ að vita vonandi í þessari viku hvenær vörnin verður og að henni lokinni er maður orðinn Meistari Þorsteinn.... ef allt gengur að óskum. Var ágætis keyrsla síðustu dagana og í hvert sinn sem ég opnaði ritgerðina datt mér í hug hvernig mætti bæta og breyta. Komið að smá slökun næstu daga vonandi, og þegar dagsetningin er komin á vörnina getum við farið að undirbúa heimferðina af alvöru. Meira síðar.

» 9 hafa sagt sína skoðun

01.08.2007 20:02:29 / steini

Fyrir ömmur og afa

Hérna má sjá stutt myndband af Sindra þar sem hann er að tala við óróann sinn:

Sindri að tjá sig :D (smella hér)
 


» 6 hafa sagt sína skoðun

22.07.2007 07:54:42 / steini

Síðustu metrarnir framundan

Nú er maður á fullu að kára masters verkefnið, tíminn búinn að líða ansi hratt og aðeins tvær og hálf vika í skil. Staðan samt bara fín að ég held og þetta ætti að hafast á tíma. Litli hlunkur orðinn tveggja mánaða og þroskast hratt, hérna er minn maður nýkominn úr baði, finnst bara ansi notalegt að láta baða sig:

 


 

Styttist síðan óðum í að við förum að flytja heim til Íslands aftur, búin að segja upp íbúðinni 15. sept. þannig að við flytjum heim í síðasta lagi þá. Ætli við förum ekki svo á fullt að ganga frá flutningsmálum þegar ég er búinn að skila, þurfum að fá vegabréf fyrir litla kall og koma búslóð í skip o. fl. Planið að reyna að slaka smá á öll fjölskyldan saman áður en haldið verður heim á leið, síðasti séns að njóta lífsins hérna í Köben. Ég ætla svo að skella mér á völlinn svona eitt síðasta skipti, Chelsea spilar æfingaleik við Bröndby í næstu viku og ætlum við Halli að skella okkur og sjá stjörnurnar. Jæja best að reyna að nýta þennan sunnudagsmorgun í smá ritgerðar skrif.


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.07.2007 20:22:43 / Johanna

Kjútípæs

Við Sólveig og litlu guttarnir hittumst í dag í góða veðrinu. Við fórum m.a. í íslabbitúr, settumst út í garð og svo kíktum við inn til Sólveigar og Georgs þar sem að strákarnir voru að leika sér saman ;) Svo sætir þessi litlu rúsínukjöt.

 

 

sætir litlu guttarnir

 

flotti óróinn sem að Sindri var dáleiddur af

 

bara sætt! 

 

myndaóðar múttur 


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 12
Leitarbox

Klukkan