Ég var að skipta á Sindra eldsnemma í morgun (í rúminu) og þegar ég ætlaði að fara með bleyjuna í ruslið þá náði ég að reka hnéð á mér í rúmið hans og viti menn helv.. hnéskelin færðist til

Þar sem að hún vildi ekki poppa í liðinn aftur þá varð Steini að hringja á sjúkrabíl. Ég var sem sé í rúminu á nærfötunum og Sindri í þvílíku stuði, bara brosandi og hjalandi á meðan mamman var stynjandi af sársauka og ekki góðar stunur

Sjúkraliðarnir komu og það fyrsta sem þeir segja er að þeir hafi enga reynslu í svona löguðu og var það nú ekki traustvekjandi fyrir mig. En ég sagði þeim bara að fixa þetta því ég væri að deyja úr sársauka. Annar þeirra byrjaði að færa hnéð til og á meðan ríghélt ég mér í hinn, þar sem að Steini hélt á litla glaða Sindra sem að saug á sér hendina í öllum þessum látum. En sem betur fer hafðist þetta og ég þurfti ekki að fara upp á spítala. Við litla fjölskyldan lögðum okkur bara aftur nema ég var með ís vafðan um hnéð. Djöf.. óheppni svona snemma morguns